Vika nr. 2 (vikuleg blogg eða?)

Jæja þá er önnur vikan mín hér í þessari erilsömu borg á enda runnin. Hún hefur nú verið töluvert mikið rólegri en sú seinasta. En jæja...hvert vorum við komin í sögunni?

O já...skólinn byrjaði af einhverri alvöru...látujm okkur sjá. Þessi vika hefur einkenst af einstaklega mikið af fyrirlestrum um hvert við eigum að leita ef við eigum við svona vandamál að stríða eða hinsegin. Held að öryggisnetið utan um okkur sé 7x í það minnsta. Sem er svo sem mjög gott þegar maður kemur langt að.  Þá hefur Rosemary umsjón með árinu okkar, Jane ef við eigum við einhver persónuleg vandamál að stríða ásamt sálfræðiteyminu sem við getum leitað til, Hazel er yfir námslegu hliðinni og svo er Rosemary einnig með örlítinn hluta af því hjá 16 af okkur, Annars sér Kevin um enskufyrirlestra og slíkt fyrir þá sem á þurfa að halda og svo er okkur skipaður 2árs nemi ef við viljum ekki leyta til neins af ofangreindu. 

í þessari viku höfum við mestmegnis heyrt af öllu sem skólinn gerir, þar á meðal sjúkraþjálfun og sjúkranudd ásamt svo mörgu öðru og allt mun ódýrara fyrir okkur nemendurna. Þeir sjá ótrúlega vel um nemendurna svo ég hugsa að enginn þurfi að hafa áhyggjur af mér Smile. Annars fórum við í 2 tíma í Experiental Anatomy - sem er blanda af tæknitímum og rýmis- og improvisation tímum. Seinni tíminn var æðislegur, skemmti mér konunglega og var óbeint sagt að ég hefði mikla orku af kennurunum, sem er reyndar það sama og ég fæ oftast frá kennurum en það er gott komment Grin. Svo höfum við Contact impro sem verður að contact impro næstu vikurnar. Byrjuðum með mjúka bolta og áttum að vera eins og tuskur yfir þá og hreyfa okkur þannig en héldum svo áfram allt yfir í að vinna 2 og 2 saman, mjög áhugavert og gaman.  seinast en ekki síst fórum við í pilates into ballett tíma...þar sem var reyndar einungis talað um hvernig næstu vikur verða.

Að þessu undanskyldu fengum við fyrirlestra um street safty frá löggunni, þar sem okkur var bent á helstu hættulegu staðina hér í grendinni og hvernig við ættum að bregðast við ýmsum aðstæðum t.d. ef við héldum að einhver væri að elta okkur og svoleiðis. Einnig að tala ekki í símann en ég held það eigi eiginlega ekki um mig og minn úrelta síma. Svo fengum við örlítla kynfræðslu frá Jane, það er hún sagði passið ykkur, og horfðum á myndband um krabbamein í eistum. Og þá held ég að upptalningin á skólaviðburðum sé búin hvað þessa viku varðar. Þó þessi vika hafi verið einstaklega þægileg með löngum hléum og mæta seint og hvaðeina. laban í ljósaskiptunum

O nei, gleymdi einu, Screening - skönnun. Fórum í þetta próf þar sem við vorum mæld og viktuð, jafnvægið skoðað, sjúkraþjálfari skoðaði liðina og við hoppuðum eins hátt og við gátum og hjóluðum eins hratt og við gátum til að þau gætu séð hversu sterk við værum.  Eftir sirka 7 vikur fáum við svo niðurstöðurnar um hvernig við stóðum okkur og hvernig við erum miðað við meðaltalið. Hlakka til, en veit nú þegar að hægri löppin er liðugri í mjöðminni - það sem ég fékk að vita strax. 

En víkjum frá skóla hlutum. 

Á mánudaginn fór ég til Önnu Birnu og Sigrúnar það tekur svona klst. að komast til þeirra héðan. Hverfið sem þær búa í er mjög rólegt, mikið af indverskum fjölskyldum, indverskar búðir og veitingastaðaðir, en mjög kósý samt. Íbúðin er mjög fín, nokkuð stór og kósý þó ég viti að með tímanum veðrur hún bara betri. Við fórum að versla og keyptum ekkert smá mikið í búðinni og svo eldaða Anna þennan dýrindis kjúkling namm namm...alveg súper. Eftir matinn sköpuðust engar smá rökræður um hvort það væri rangt að höggva niður jólatré þar sem Sigrúnu fannst það meðan við hin vorum á móti. (Það er ég, Anna og Högni (kisi) kærastinn hennar Sigrúnar sem er í skóla að læra að búa til teiknimyndir í 3-vídd, ef ég skil rétt) Þegar við höfðum gefist upp á að Sigrún gæfist upp þá skelltum við okkur í sófann og lékum sófakartöflur þar til kominn var háttatími, en ég svaf á sófanum. góða súpan og salatið :D

Þriðjudagskvöldið var tekið með rólegheitum eftir að hafa farið í búðina og keypt í matinn og eldað Spaghetti Boulonesha (veit þetta er vitlaust skrifað en þið skiljið). Namm namm - mjög gott... enda fékk ég það í hádegismat í 2 daga eftir þetta. Miðvikudagskveldi var eitt með Dave (Norður- Íra sem er í Trinity), Chris (snobbuðum enskum strák sem er einnig í Trinity) og James sem ég veit ekki alveg hver er. Fengum okkur nokkra bjóra saman og ætluðum í einhvert háskóla-party sem þeir héldu að væri núna en byrjar víst ekki fyrr en í næstu viku. Satt best að segja var ég hálffegin því þá fékk ég að fara tiltölulega snemma heim því þetta hafði virkilega takmarkað skemmtanagildi. 

Fimmtudagskvöld var svo 80's diskó, sem ég skemmti mér vel á alveg edrú Smile og var að dansa með ensku krökkunum og zoe frá kýpur. Allt mjög skemmtilegir krakkar sem ég hef kynnst svolítið betur í þessari viku og á eftir að kynnast miklu betur í framtiðinni. Það eru 15 strákar í árinu af 90  manns, það er tiltölulega hátt hlutfall. Og þessir 90 sem komust inn voru valdir úr hópi um 900 manns. Svona til að setja einhverjar upplýsingar hérna inn sem kæmu efningu ekkert við Wink. Í gær fórum við Sara svo út með Ellen og Hrafnhildi (ellen er á 2. ári og hrafnhildu á því 3ja) en þær stelpur þekkjast allar úr klassíska listdansskólanum svo ég var örlítið utangarðs en samt mjög fínt. 

Í gæGarðurinn - queens houser gerði ég svo mest lítið, ætlaði að fara á markaði en var svo löt að vakna og koma mér af stað að það tók því nánast ekki svo ég fór bara í göngutúr um Greenwich Park. Indislegur garður meira að segja með rósagarði og allt.  Og risa stór held ég hafi gengið hringinn og verið um 2 tíma, reyndar ekkert að flýta mér en samt sem áður. Svo fór ég á Maritime safni, sem er safn nánast því bara um skip og sjóinn og Nelson. Margt áhugavert sem leyndist þar inni þó að ég held ég hafi eytt mestum tíma í að skoða sverð og sögu Nelsons. Þar við hliðiná er the Queens house, en það var lokað út af einhverri veislu svo ég verð bara að fara seinna. Reyndar var fólkið í veislunni svolítið fyndið klætt að mínu mati, karlarnir allir í kjólfötum og konurnar allar með einhverskonar fjaðraskraut í hárinu. En ætli það sé ekki bara stíllinn hjá ubbunum hérGreenwich parkna. Restin af deginum fór í að japla á brauðinu sem ég keypti í bakaríinu og er fyrsta brauðið sem ég borða síðan ég kom hingað og horfa á Gregory House leysa læknaþrautirnar sínar. Sem er reyndar það sama og ég byrjaði þennan dýrindis dag á. Eftir að hafa sannfært sjálfa mig um að koma mér á fætur áðan þá fór ég aftur á röltið um hverfið, endaði í bókabúðinni (en keypti ekkert þó ég fyndi ýmislegt sem mig langaði í), apótekinu þar sem ég fjárfesti í tannþráði og markaðnum sem ég vissi ekki af þar sem var til endalaust mikið af alls kyns dótaríi sem ég hefði alveg verið til í. Endaði á að kaupa spegilflís af einum kalli á 300 kall sem er ekki ýkja slæmt held ég. Þarf bara að kaupa mér límband með lími báðu megin núna LoL. Íkorni

Svo fæ ég kannski að skipta um herbergi þar sem ég get enganveginn sofið almennilega nema með eyrnatappa í eyrunum. Vona innilega að það gangi upp en það er samt ekki víst þar sem fólk úr Uni of Greenwich var að flytja inn um helgina. En ef það tekst þá verð ég ekki fyrir ofan hliðið (þar sem um 900 manns búa hér þegar mest er og það ískrar í því og ég heyri í öllum sem koma seint heim o.s.frv.) né heldur mun ég snmúa út að götunni sem er ALDREI tóm. Ég bara krosslegg fingurna og vona það besta, annars venst ég þessu kannski eftir nokkra mánuði. 

Næsta vika verður prógrammið svo dálítið strangara. En ég verð í skólanum frá 8:45 - 18:30 með um klst. hádegishléi og stuttum hléum alla virka daga. Svo nóg að gera! En ég hlakka bara til. Eftir 5 vikur verður okkur svo skipt í 4 hópa eftir getu í hverju fagi...þarf því að fara að standa mig til að ná í nokkuð góðann hóp. Svo eins gott að fara að setja eyrnatappana í eyrun og reyna að ná í góðann nætursvefn fyrir morgundaginn Sleeping. Góða nótt og sofiði rótt. 

Lilja litla lipurtá. 

P.S. hér eru nokkrar myndir úr Greewich Park Joyful Uni of Greenwich- það er munu verða...nenni ekki meiru í kvöldGreenwich planetariumAndapollurinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta

Hæ mús

Frábær baksíða á mbl í dag þar sem er rætt við ömmu þína um eplarækt og nípur. Varðandi öryggi - þá var hún langamma þín alveg með þetta á tæru: Aldrei út nema með góða regnhlíf. - og ef einhver er að elta þig þá bara beint inn í dimmasta sundið og þegar bófinn kemur þá bara berja hann í hausinn..........

Ásta , 22.9.2008 kl. 10:34

2 identicon

Sagði amma Klara þetta? lýst vel á...þarf greinilega að fjárfesta í almennilegri regnhlíf .

Lilja (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 19:20

3 identicon

"það er munu verða" hvað? ha?
Ég verð að viðurkenna að þetta er lengsta blogg sem ég hef actually lesið :D Venjulega skima ég bara í gegn :P
Ég er byrjuð að vinna á landsspítalanum :)

arena (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 19:09

4 identicon

Já, ég afsaka það...áttaði mig ekki á því en nennti svo ekki að taka hluti í burtu. Skal reyna að blogga oftar í framtíðinni eða minna

Lilja (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 20:22

5 identicon

nei, nei. Þetta þýðir bara að mér fannst það spennandi :D Ef þetta hefði verið leiðinlegt þá hefði ég ekki nennt að lesa það ;)

Arena (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 16:21

6 identicon

Yeah! Það er gaman að heyra...að líf mitt sé spennandi Hlakka svo til að sjá þig, og ykkur allar stelpurnar um jólin!!!! Sakna ykkar nú þegar.

Lilja (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 19:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband